Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað ráðgefandi fagnefnd við mat Rannís á rannsóknar- og þróunarverkefnum. Skipunin er í samræmi við 8. gr. laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009. Hlutverk nefndarinnar er að veita Rannís ráðgefandi álit um einstök álitamál sem upp koma við mat Rannís á rannsóknar- og þróunarverkefnum samkvæmt lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009 og reglugerð, nr. 758/2011. Álit nefndarinnar eru ráðgefandi. Endanleg ákvörðun um afgreiðslu umsókna er í höndum Rannís samkvæmt lögum.
Skipunartími: 26. mars 2026 – 31. desember 2026.
Ráðgefandi fagnefnd er þannig skipuð:
- Pétur Örn Pálmarsson, fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins og formaður hópsins,
- Kolbrún Hrafnkelsdóttir, fulltrúi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins,
- Erla Tinna Stefánsdóttir, fulltrúi Samtaka atvinnulífsins.