Ráðgefandi stýrihópur vegna samráðs við gerð loftslagsstefnu

Skipaður 24. apríl 2026

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að skipa ráðgefandi stýrihóp vegna samráðs við gerð loftslagsstefnu.

Lög um loftslagsmál nr. 70/2012 kveða á um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og aðlögunaráætlun vegna loftslagsbreytinga. Þessi stjórntæki skapa ramma um útfærslu aðgerða og mynda mikilvægan grunn fyrir framkvæmd loftslagsmála. Markmið um að Ísland nái kolefnishlutleysi eigi síðar en árið 2040 var einnig lögfest í markmiðsgrein laganna árið 2021. Frumvarp til nýrra loftslagslaga var nýverið lagt fram á Alþingi þar sem kveðið er á um gerð loftslagsstefnu og frekari útfærslu á inntaki og framkvæmd markmiðsins um kolefnishlutleysi í íslensku samhengi. Samhliða og í kjölfar þeirrar lagasetningar gefst tækifæri til að móta heildstæða stefnumarkandi umgjörð sem skilgreinir sýn og forsendur kolefnishlutleysis og skapar samræmdan ramma fyrir regluverk loftslagsmála og þróun loftslagsaðgerða.

Vinna við loftslagsstefnu er umfangsmikið verkefni sem felur í sér viðamikið samráð. Á Umhverfisþingi 2025 fór fram fyrsta atlaga að samráði um mótun loftslagsstefnu sem yfir 300 einstaklingar tóku þátt í. Í kjölfarið voru markaðar megináherslur sem lagðar eru til sem grunnur fyrir áframhaldandi samráð við gerð loftslagsstefnu:

1. Náttúrumiðaðar lausnir
2. Orkuskipti
3. Tæknilausnir og nýsköpun
4. Innviðir og sveitarfélög
5. Réttlát umskipti og samfélag

Hlutverk hópsins að vera ráðgefandi við skipulag og eftirfylgni samráðs vegna nýrrar loftslagsstefnu.
Gert er ráð fyrir að meginhluti samráðsins fari fram haustið 2026. Þá verða haldnir samráðsfundir um helstu stefnuáherslur. Á fundunum munu hagaðilar, sem tengjast mismunandi áherslum, ræða hlutverk hverrar áherslu í loftslagsstefnunni og greina hvaða spurningum er ósvarað. Markmiðið er að tryggja að viðeigandi sérþekking og sjónarmið komi fram við frekari mótun stefnunnar og að samráðsferlið verði markvisst og gagnsætt. Jafnframt er gert ráð fyrir því fulltrúar í hópnum taki þátt í samráðsfundum og í kjölfarið rýni samantektarskýrslu með niðurstöðum þeirra. Starfsfólk ráðuneytis sér um utanumhald funda og gagna. Afurð þeirrar vinnu sem þegar er hafin, og mun halda áfram með hliðsjón af samráði, verður tillaga að loftslagsstefnu sem áætlað er að liggi fyrir í lok árs 2026.

Lagt er upp með að stýrihópurinn skili samantektarskýrslu samráðs til ráðherra eigi síðar en 15. nóvember 2026.

Stýrihópurinn er þannig skipaður:

Án tilnefningar
Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, formaður

Samkvæmt tilnefningu umhverfis- og náttúruverndarsamtaka
Árni Finnsson
Snorri Hallgrímsson, til vara


Samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Finnur Ricart Andrason
Freyja Pétursdóttir, til vara

Samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins
Hugrún Elvarsdóttir
Hildur Hauksdóttir, til vara

Samkvæmt tilnefningu stéttarfélaga
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
Ingvar Freyr Ingvarsson, til vara

Samkvæmt tilnefningu Rannís
Svandís Ósk Símonardóttir
Sigurður Óli Sigurðsson, til vara

Starfsmaður hópsins er Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir, sérfræðingur í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.