Refsiréttarnefnd

Refsiréttarnefnd hefur það hlutverk að vera ráðuneytinu til ráðgjafar á sviði refsiréttar.

Helstu verkefni nefndarinnar eru að:

  • vera dómsmálaráðherra til ráðgjafar um samningu frumvarpa og annarra reglna á sviði refsiréttar,
  • semja frumvörp og aðrar reglur að beiðni ráðherra á því sviði og í samræmi við áætlun og áherslur ráðherra,
  • veita umsagnir um frumvörp og aðrar tillögur er varða refsirétt,
  • fylgjast með þróun á sviði refsiréttar, þar með talið erlendra refsilaga, einkum á Norðurlöndum, og alþjóðlegum viðhorfum á þessu sviði.

Í nefndinni eiga sæti:

  • Hafsteinn Dan Kristjánsson, prófessor í lögum við Háskólann í Reykjavík, formaður
  • Daði Kristjánsson, héraðsdómari
  • Hulda Elsa Björgvinsdóttir, lögfræðingur
  • Símon Sigvaldason, héraðdómari
  • Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari

Tengiliðir ráðuneytisins við nefndina eru Anton Ástvaldsson og Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson.