Skipaður 31. ágúst 2026
Megintilgangur samráðshóps stjórnvalda er að undirbúa flutningsjöfnunarkerfi og útfærslu þess í tengslum við breytta meðhöndlun úrgangs í samstarfi við undirbúningsfélag að stofnun hátæknibrennslustöðvar.
Samráðshópnum verður auk þess m.a. falið að:
- kanna kosti þess að söfnunarkerfi og förgun á dýraleifum geti einnig orðið hluti af verkefninu.
- taka við og vinna úr eftir atvikum tillögum framangreinds undirbúningsfélags, eða annarra, m.a. að breytingum á löggjöf sem stutt gætu við verkefnið.
Samkvæmt evrópsku regluverki um meðhöndlun úrgangs, sem lögfest hefur verið á Íslandi, telst brennsla úrgangs með orkunýtingu til endurnýtingar og er æskilegri kostur en urðun eða önnur tegund förgunar. Á síðastliðnum árum hefur tekist að draga mjög úr urðun úrgangs hér á landi með því að flytja úr landi til slíkrar brennslu úrgang sem ekki er mögulegt að endurvinna. Til lengri tíma litið er útflutningur til brennslu þó ekki hagkvæmasta leiðin, auk þess sem ekki er mögulegt að tryggja að hún verði ávallt fær.
Að lágmarka urðun úrgangs er skilvirkasta leiðin til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá meðhöndlun úrgangs. Í samræmi við það er í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum að finna aðgerð sem felst í samvinnuverkefni um uppbyggingu nauðsynlegra innviða svo árleg brennsla á 100-140 þús. tonnum af úrgangi með orkunýtingu og kolefnisföngun verði möguleg hér á landi. Uppbygging innviða til brennslu úrgangs hér á landi er jafnframt í samræmi við stefnu stjórnvalda í úrgangsmálum, Í átt að hringrásarhagkerfi.
Um nokkurt skeið hefur verið unnið að könnun á fýsileika þess að byggja hátæknibrennslustöð á Íslandi. Niðurstöður starfshópa og forverkefna hafa verið á einn veg um það að hagkvæmt geti verið að byggja slíka stöð hér á landi. Reikna má með að hliðgjöld brennslustöðvar fyrir hvert kílógramm úrgangs hér á landi geti verið allt að helmingi lægri en það sem greitt er fyrir útflutning og brennslu í dag, allt eftir endanlegri stærð brennslustöðvar.
Samráðshópurinn skal starfa með Sambandi íslenskra sveitarfélaga og undirbúningsfélagi um hátæknibrennslu á Íslandi, auk þess að hafa samráð við Samtök atvinnulífsins.
Samráðshópurinn er þannig skipaður:
Án tilnefningar
Guðmundur B. Ingvarsson, formaður
Samkvæmt tilnefningu innviðaráðuneytis
Elmar Björnsson
Samkvæmt tilnefningu atvinnuvegaráðuneytis
Donika Kolica
Samkvæmt tilnefningu fjármála- og efnahagsráðuneytis
Steinunn Sigvaldadóttir