Samráðshópur um lífrænan úrgang

Skipaður 22. júní 2026

Á undanförnum áratugum hefur mikið áunnist í fráveitumálum hér á landi með uppbyggingu á fráveitukerfum og hreinsivirkjum. Staða fráveitumála mætti hins vegar vera í betri farvegi og ljóst er að kröfur samkvæmt nýrri fráveitutilskipun ESB munu hafa í för með sér frekari áskoranir hér á landi. Gert er ráð fyrir að aukin hreinsun muni hafa í för með sér aukið magn af seyru sem þarf að koma í viðeigandi farveg. Fiskeldi á landi er jafnframt vaxandi atvinnugrein á Íslandi og fyrirséð er að magn fiskeldismykju frá atvinnugreininni muni aukast verulega á komandi árum. Þá hefur verið til skoðunar heppilegur farvegur til ráðstöfunar á mykju frá svínabúum. Enn fremur er ljóst að byggja þarf upp aukna innviði hér á landi til meðhöndlunar á lífrænum úrgangi.

Með hliðsjón af framangreindu er mikilvægt að ríki, sveitarfélög og atvinnulíf taki höndum saman við að móta skynsamar og rekstrarhæfar ráðstöfunarleiðir fyrir fiskeldis- og svínamykju hér á landi. Það felast mikil tækifæri í að skoða málið heildstætt einkum með tilliti til samlegðaráhrifa af innviðauppbyggingu fyrir meðhöndlun á öðrum lífrænum úrgangi.

Samráðshópur um lífrænan úrgang mun starfa samhliða samráðshópi um fráveitur sem starfað hefur frá 2022 og m.a. haft það hlutverk að fjalla um aukna nýtingu seyru sem fellur til hjá fráveitum, greina hvaða möguleikar eru til að nýta sýru og setja upp tímasetta áætlun með þeim sem seyra fellu rtil hja og þeirra sem geta nýtt seyru.

Meginhlutverk samráðshóps um lífrænan úrgang er að móta skynsamar og rekstrarhæfar ráðstöfunarleiðir fyrir lífrænan úrgang, einkum fiskeldis- og svínamykju, og er samráðshópnum m.a. falið að:

• taka saman töluleg gögn um magn og upprunastað fiskeldismykju og svínamykju,
• taka saman önnur töluleg gögn um lífrænan úrgang eftir sem þörf er á,
• skoða kosti og annmarka verkefna sem tengjast ráðstöfun á fiskeldismykju, svínamykju, seyru og lífrænum úrgangi sem unnið hefur verið að á undanförnum árum,
• skoða möguleika og annmarka á blöndun á lífrænum úrgangi og seyru frá fráveitukerfum,
• ræða og leggja fram mögulegar sviðsmyndir varðandi ráðstöfunarleiðir og nauðsynlega innviðauppbyggingu á komandi árum miðað við áætlað framboð af lífrænum úrgangi næstu árin og
• leggja fram tillögur að aðgerðum til að ryðja hindrunum úr vegi og liðka fyrir uppbygginu viðeigandi ráðstöfunarleiða.

Samráðhópurinn skal skila skýrslu til ráðherra fyrir 15. nóvember 2026.

Samráðshópur um lífrænan úrgang er þannig skipaður:

Án tilnefningar
Kjartan Ingvarsson, formaður

Samkvæmt tilnefningu atvinnuvegaráðuneytis
Rafn Helgason

Samkvæmt tilnefningu Bændasamtaka Íslands
Gyða Pétursdóttir

Samkvæmt tilnefningu Umhverfis- og orkustofnunar
Hlöðver Stefán Þorgeirsson

Samkvæmt tilnefningu Samtaka fyrirtækja í landbúnaði
Margrét Gísladóttir

Samkvæmt tilnefningu Samtaka iðnaðarins
Sigurður Helgi Birgisson

Samkvæmt tilnefningu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
Þorsteinn Másson