Matvælaráðherra hefur skipað samráðshóp um skipulagningu eftirlits með veiðum erlendra skipa, skipunartími hópsins er frá 31. janúar 2023 til 1. febrúar 2027.
Í júní 2018 skilaði starfshópur er skipaður var fulltrúum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Fiskistofu og Landhelgisgæslu Íslands álitsgerð um eftirlit með veiðum erlendra skipa í íslenskri lögsögu. Meðal tillagna hópsins var að sett yrði á stofn samráðshópur ráðuneytisins, Fiskistofu og Landhelgisgæslunnar sem komi saman minnst tvisvar á ári, fyrir upphaf loðnuvertíðar og aftur að vori, og móti áherslur og fyrirkomulag eftirlits með fiskveiðum erlendra skipa. Verkefni samráðshópsins myndu einnig ná til þess að móta heildarstefnu í eftirliti með veiðum innlendra skipa.
Í samráðshópnum eru eftirfarandi:
- Skúli Kristinn Skúlason formaður, skipaður af matvælaráðuneyti
- Sóley Kaldal, aðalmaður, skipuð af matvælaráðuneyti
- Viðar Ólason, aðalmaður, skipaður af Fiskistofu
- Elín Björg Ragnarsdóttir, varamaður skipuð af Fiskistofu
- Guðríður M. Kristjánsdóttir, aðalmaður, skipuð af Landhelgisgælsu Íslands
- Björgólfur H. Ingason, varamaður, skipaður af Landhelgisgæslu Íslands