Samkvæmt 5. mgr. 133 tollalaga nr. 88/2005, getur fjármála- og efnahagsráðherra skipað nefnd til að rannsaka kærur um innflutning vara á undirboðskjörum eða með styrkjum og gera tillögur til hans um álagningu undirboðs- eða jöfnunartolla.
Ráðherra skiptar sjö sérfróða menn til fjögurra ára í senn samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 351/1994. Í nefndinni eiga sæti þrír menn tilnefndir af atvinnuvegaráðuneytinu, einn tilnefndur af ríkisskattstjóra, einn tilnefndur af samkeppniseftirlitinu, einn tilnefndur af utanríkisráðuneytinu og einn skipaður af ráðherra án tilnefningar.
Í nefndinni sitja:
- Brynhildur Kr. Aðalsteinsdóttir, skipuð án tilnefningar.
- Arnar Freyr Einarsson, skipaður af atvinnuvegaráðuneytinu.
- Brynja Stephanie Swan, skipuð af atvinnuvegaráðuneytinu.
- Elísabet Anna Jónsdóttir, skipuð af atvinnuvegaráðuneytinu.
- Guðbjörn Guðbjörnsson, skipaður af ríkisskattstjóra.
- Magnús Þór Kristjánsson, skipaður af Samkeppniseftirlitinu.
- María Guðjónsdóttir, skipuð af utanríkisráðuneytinu.
Netfang nefndarinnar er: [email protected]