Samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga

Tilgangur samstarfsnefndar ríkis og sveitarfélaga (Jónsmessunefndar) er að auka traust og formfestu í samskiptum ríkis og sveitarfélaga, bæta stjórnsýslu hins opinbera og efla gagnkvæman skilning á viðfangsefnum og þörfum hvors aðila fyrir sig. Nefndin skal fara yfir einstök mál sem vísað er til hennar og jafnframt skal nefndin taka sérstaklega upp á fundum sínum umræðu um með hvaða hætt er unnt að bæta verkferla og samskipti þessara stjórnsýslustiga sbr. 6. mgr. 128. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Nefndin er þannig skipuð:

  • Ingilín Kristmannsdóttir, ráðuneytisstjóri í innviðaráðuneytinu
  • Hermann Sæmundsson, ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu
  • Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur

Með nefndinni starfa:

  • Aðalsteinn Þorsteinsson, skrifstofustjóri í innviðaráðuneytinu
  • Guðni Geir Einarsson, forstöðumaður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
  • Jóhanna Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í innviðaráðuneytinu
  • Marta Guðrún Skúladóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu

Núgildandi samstarfssáttmáli er frá 2. apríl 2008 og er hann ótímabundinn en með ákvæði um endurskoðun ef annar hvor aðili telur ástæðu til.