Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir

Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir er fjármála- og efnahagsráðuneytinu til ráðuneytis um fjármálalega framkvæmd laga nr. 84/2001 um skipan opinberra framkvæmda.

Hlutverk nefndarinnar er að leiða saman sjónarmið eignaraðila opinberra framkvæmda á undirbúnings- og framkvæmdastigi, rannsaka frumathugun og áætlunargerð sem er undanfari verklegrar framkvæmdar og fylgjast með framkvæmd hinnar fjármálalegu hliðar opinberra framkvæmda.

Í ráðgjöf sinni til fjármála- og efnahagsráðuneytisins leggur nefndin meðal annars mat á hvort frumathugun og áætlunargerð uppfylli þau skilyrði sem þeim eru sett og hvort verkframkvæmd sé tilbúin til útboðs og fullnægjandi fjárheimildir fyrir hendi. Nefndin hefur aðsetur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Nánari upplýsingar um opinberar framkvæmdir má finna á verkefnasíðu ráðuneytisins.

Skipan nefndarinnar

Í nefndinni eiga sæti formaður fjárlaganefndar Alþingis eða sérstaklega tilnefndur fulltrúi nefndarinnar, forstjóri Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna og ráðuneytisstjóri fjármála- og efnahagsráðuneytisins, sem jafnframt er formaður nefndarinnar.