Sérfræðinefnd um forgangsröðun o.fl. í einstaklingssniðinni heilbrigðisþjónustu

Heilbrigðisráðherra hefur skipað sérfræðinefnd um forgangsröðun o.fl. í einstaklingssniðinni heilbrigðisþjónustu (EHÞ). Sérfræðinefndin skal hafa yfirumsjón með forgangsröðun, nýtingu og miðlun upplýsinga úr rannsóknum til heilbrigðiskerfisins, skipulagi á hnitmiðaðri skimun og verkferlum fyrir greiningu, meðferð og eftirlit.


Sérfræðinefndin er þannig skipuð:

  • Sædís Sævarsdóttir, formaður án tilnefningar
  • Sigurdís Haraldsdóttir, tilnefnd af Landspítala
  • Hans Tómas Björnsson, tilnefndur af Erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítalans
  • Elísabet Benedikz, tilnefnd af embætti landlæknis
  • Martin Ingi Sigurðsson, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands
  • Kristín Ninja Guðmundsdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneytinu
 
Starfsmaður sérfræðinefndarinnar er Andrea Jónsdóttir sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.