Skólanefnd Slysavarnaskóla sjómanna

Skólanefndin er skipuð samkvæmt lögum um Slysavarnaskóla sjómanna. Meginhlutverk nefndarinnar er að fjalla um málefni Slysavarnaskóla sjómanna, einkum varðandi tækjakaup og búnað hans, viðhald, framkvæmdir og áframhaldandi uppbyggingu. Skólanefnd gerir, að fenginni umsögn öryggisfræðslunefndar sjómanna, tillögur til stjórnar Slysavarnafélags Íslands um námskeiðahald, námsskrá og lengd námskeiða á vegum skólans. Skólanefnd ræður skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna.

Í nefndinni sitja:

  • Gunnar Tómasson, formaður, tilnefndur af Slysavarnafélaginu Landsbjörg,
  • Margrét Gunnarsdóttir, tilnefnd af Slysavarnafélaginu Landsbjörg,
  • Hilmar Snorrason, tilnefndur af Slysavarnafélaginu Landsbjörg,
  • Valmundur Valmundsson, tilnefndur af Sjómannasambandi Íslands,
  • Árni Bjarnason, tilnefndur af Félagi skipstjórnarmanna
Skipunartími er frá og með 29. nóvember 2023 til og með 30 nóvember 2027 eða til fjögurra ára.