Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem ætlað er að endurskoða löggildingu sérgreina í læknisfræði
Samkvæmt reglugerð nr. 856/2023 um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi eru yfir fimmtíu aðalsérgreinar, rúmlega hundrað undirsérgreinar og þrjár viðbótarsérgreinar löggiltar hér á landi. Annars staðar á Norðurlöndum eru undirsérgreinar í læknisfræði almennt ekki löggiltar og þar með ekki veitt sérfræðileyfi í þeim af stjórnvöldum. Með löggildingu sérgreinar, hvort sem það er aðal-, undir- eða viðbótarsérgrein, er atvinnufrelsi að viðkomandi sérsviði takmarkað við þá eina sem hafa sérfræðileyfi í sérgreininni útgefið af embætti landlæknis. Rök fyrir slíkri takmörkun verða að varða almannahagsmuni, þ.e. öryggi og hagsmuni sjúklinga, og ekki má ganga lengra í takmörkunum heldur en nauðsyn krefur.
Yfirleitt er meira um það erlendis að fagfélög sérgreina veiti viðurkenningar eða vottanir á sérhæfingu innan undirsérgreina heldur en að stjórnvöld geri það með löggildingu og þar með takmörkun atvinnufrelsis. Sú leið hefur hingað til ekki verið skoðuð af stjórnvöldum hér á landi.
Löggildingar sérgreina í læknisfræði voru ekki endurskoðaðar þegar ný læknareglugerð var gefin út 2023. Verkefnið þótti of umfangsmikið til þess að klára það samhliða endurnýjun reglugerðarinnar. Starfshópurinn sem vann að nýju læknareglugerðinni var þó sammála um að þörf væri á endurskoðun löggiltra sérgreina í læknisfræði, ekki síst undirsérgreina.
Hópurinn skal endurskoða reglugerðina hvað varðar löggildingar sérgreina, þ.e. aðal-, undir- og viðbótarsérgreina og skili tillögum eins fljótt og auðið er.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
- Ester Petra Gunnarsdóttir, lögfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, formaður
- Tómas Þór Ágústsson, tilnefndur af Landspítala
- Angela Guðbjörg Eggertsdóttir, tilnefnd af Landspítala
- Lilja Björk Ásgrímsdóttir, tilnefnd af embætti landlæknis
- Dögg Pálsdóttir, tilnefnd af Læknafélagi Íslands
- Margrét Dís Óskarsdóttir, tilnefnd af Framhaldsmenntunarráði lækninga
- Gunnar Thorarensen, tilnefndur af Framhaldsmenntunarráði lækninga
- Anna Björg Jónsdóttir, tilnefnd af Framhaldsmenntunarráði lækninga og fulltrúi mats- og hæfisnefndar í hópnum
Starfsmaður hópsins er Andrea Jónsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.