Starfsgreinaráð heilbrigðis-, félags- og uppeldisgreina 2023-2027

Starfsgreinaráð heilbrigðis-, félags- og uppeldisgreina er skipað samkvæmt 24. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla. Starfsgreinaráð eru hvert á sínu sviði ráðherra til ráðgjafar um starfsnám á framhaldsskólastigi. Hlutverk þeirra er m.a. að gera tillögur um almenn markmið náms, skilgreina þarfir fyrir kunnáttu og hæfni og gera tillögur um lokamarkmið náms.

Ráðið er svo skipað:

Aðalmenn:

  • Arna Jakobína Björnsdóttir, tilnefnd af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
  • Sandra Bryndísardóttir Franks, tilnefnd af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
  • Jóhanna Þórdórsdóttir, tilnefnd af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
  • Silja Eyrún Steingrímsdóttir, tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands
  • Berglind Eva Ólafsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Vignir Hafþórsson, tilnefndur af félags- og húsnæðismálaráðuneyti
  • Dagmar Huld Matthíasdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti
  • Svava Kristín Þorkelsdóttir, tilnefnd af mennta- og barnamálaráðuneyti
  • Marín Björk Jónasdóttir, tilnefnd af Skólameistarafélagi Íslands og Kennarasambandi Íslands

Varamenn:

  • Karl Rúnar Þórsson, tilnefndur af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
  • Edda Ragna Davíðsdóttir, tilnefnd af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
  • Svala Ósk Sævarsdóttir, tilnefnd af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
  • Arinbjörn Rögnvaldsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
  • Bjarni Ómar Haraldsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Tryggvi Haraldsson, tilnefndur af félags- og húsnæðismálaráðuneyti
  • Ester Petra Gunnarsdótitr, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti
  • Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, tilnefndur af mennta- og barnamálaráðuneyti
  • Kristrún Sigurðardóttir, tilnefnd af Skólameistarafélagi Íslands og Kennarasambandi Íslands

Skipunartími er frá 9. maí 2023 til 8. maí 2027.