Starfsgreinaráð samgöngu-, farartækja- og flutningsgreina 2023-2027

Starfsgreinaráð samgöngu-, farartækja- og flutningsgreina er skipað samkvæmt ákvæði 24. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla. Starfsgreinaráð eru, hvert á sínu sviði ráðherra til ráðgjafar um starfsnám á framhaldsskólastigi. Hlutverk þeirra er m.a. að gera tillögur um almenn markmið náms, skilgreina þarfir fyrir kunnáttu og hæfni og gera tillögur um lokamarkmið náms.

Ráðið er svo skipað:

Aðalmenn: 

  • Hilmar Harðarson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
  • Helgi Ólafsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
  • Þórarinn Sverrisson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
  • Guðmundur Óskarsson, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
  • Gunnar Valur Sveinsson, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
  • Jóhannes Jóhannesson, tilnefndur af Bílgreinasambandinu
  • Hreinn Ágúst Óskarsson, tilnefndur af Skólameistarafélagi Íslands og Kennarasambandi Íslands

Varamenn:

  • Jóhann R. Sigurðsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
  • Birgir Örn Guðmundsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
  • Arinbjörn Rögnvaldsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
  • Júlíana Einarsdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
  • Ágústa J. Jóhannesdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
  • Sverrir Gunnarsson, tilnefndur af Bílgreinasambandinu
  • Hildur Ingvarsdóttir, tilnefnd af Skólameistarafélagi Íslands og Kennarasambandi Íslands

Skipunartími er frá 9. maí 2023 til 8. maí 2027.