Starfsgreinaráð skrifstofu- og verslunargreina 2023-2027

Starfsgreinaráð skrifstofu-og verslunargreina er skipað samkvæmt ákvæði 24. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla. Starfsgreinaráð eru, hvert á sínu sviði ráðherra til ráðgjafar um starfsnám á framhaldsskólastigi. Hlutverk þeirra er m.a. að gera tillögur um almenn markmið náms, skilgreina þarfir fyrir kunnáttu og hæfni og gera tillögur um lokamarkmið náms.

 

Ráðið er svo skipað:

 

 Aðalmenn: 

  • Selma Kristjánsdóttir, samkvæmt tilnefningu Alþýðusambands Íslands
  • Signý Aðalsteinsdóttir, samkvæmt tilnefningu Alþýðusambands Íslands
  • Marta Ólöf Jónsdóttir, samkvæmt tilnefningu Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
  • Jóhanna Laufdal, samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins
  • Gunnur Líf Gunnarsdóttir, samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins
  • Sveinborg Hafliðadóttir, samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins
  • Jakob Ómarsson, samkvæmt tilnefningu Skólameistarafélags Íslands og Kennarasambands Íslands

Varamenn:

  • Eiður Stefánsson, samkvæmt tilnefningu Alþýðusambands Íslands
  • Kristlind Viktoría Leifsdóttir Sörensen, samkvæmt tilnefningu Alþýðusambands Íslands
  • Sigrún Ómarsdóttir, samkvæmt tilnefningu Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
  • Katrín Ósk Einarsdóttir, samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins
  • Ragna Vala Kjartansdóttir, samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins
  • Björg Ársælsdóttir, samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins
  • Ólöf Björg Kristjánsdóttir, samkvæmt tilnefningu Skólameistarafélags Íslands og Kennarasambands Íslands

 

Skipunartími er frá 12. maí 2023 til 11. maí 2027.