Starfsgreinaráð snyrtigreina 2023-2027

Starfsgreinaráð snyrtigreina er skipað samkvæmt ákvæði 24. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla. Starfsgreinaráð eru hvert á sínu sviði ráðherra til ráðgjafar um starfsnám á framhaldsskólastigi. Hlutverk þeirra er m.a. að gera tillögur um almenn markmið náms, skilgreina þarfir fyrir kunnáttu og hæfni og gera tillögur um lokamarkmið náms.

Ráðið er svo skipað:

Aðalmenn:

  • Andri Guðmundsson, samkvæmt tilnefningu Alþýðusambands Íslands
  • Guðrún Diljá Baldvinsdóttir, samkvæmt tilnefningu Alþýðusambands Íslands
  • Hulda Hafsteinsdóttir, samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins
  • Erna María Eiríksdóttir, samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins
  • Hafdís Grétarsdóttir, samkvæmt tilnefningu Skólameistarafélags Íslands og Kennarasambands Íslands

Varamenn:

  • Lárus Arnar Sölvason, samkvæmt tilnefningu Alþýðusambands Íslands
  • Ragnheiður Mekkín Th. Ragnarsdóttir, samkvæmt tilnefningu Alþýðusambands Íslands
  • Sigríður Valdís Bergvinsdóttir, samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins
  • Hildur Salína Ævarsdóttir, samkvæmt tilnefningu Skólameistarafélags Íslands og Kennarasambands Íslands

Skipunartími er frá 12. maí 2023 til 11. maí 2027.