Starfshópur um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (nú innviðaráðherra) skipaði starfshóp sem hefur það hlutverk að vinna tillögu að endurskoðuðu samkomulagi ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um eflingu almenningsamgangna á höfuðborgarsvæðinu, sbr. samkomulag varðandi rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu dags. 26. september 2019.

Starfshópurinn er svo skipaður:

  • Árni Freyr Stefánsson, tilnefndur af innviðaráðherra,
  • Guðmundur Axel Hansen, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  • Sigrún Ólafsdóttir, tilnefnd af forsætisráðuneyti,
  • Birgir Björn Sigurjónsson, tilnefndur af Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu,
  • Ásthildur Helgadóttir, tilnefnd af Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu,
  • Páll Björgvin Guðmundsson, tilnefndur af Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.