Starfshópur um eftirfylgni framkvæmdaáætlunar í barnavernd 2023-2027

Hlutverk starfshópsins er að sjá um eftirfylgni verkefna í samræmi við þingsályktun um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023-2027 sem samþykkt var á Alþingi 11. desember 2023.

Verkefni hópsins er að hafa umsjón með og fylgja eftir framkvæmd verkefna sem skilgreind eru í áætluninni. Hópurinn skal einnig taka saman stöðu verkefnanna og upplýsa stýrihóp Stjórnarráðsins í málefnum barna. 

Mælst er til þess að starfshópurinn skili skýrslu til ráðherra fyrir lok árs 2027 og ljúki þá störfum.

Starfshópurinn er þannig skipaður:

  • Linda Hrönn Ingadóttir, formaður, án tilnefningar
  • María Ingibjörg Kristjánsdóttir, skv. tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Lilja Rún Sigurðardóttir skv. tilnefningu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála
  • Guðrún Þorleifsdóttir, skv. tilnefningu Barna- og fjölskyldustofu