Í janúar 2025 skipaði innviðaráðherra starfshóp til að leggja mat á nýtingu og áhrif framlags Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða. Starfshópurinn skilaði skýrslu sinni í júní 2025 og voru þar m.a. settar fram sex ábendingar til stjórnvalda, ríkis og sveitarfélaga:
• Rannsaka þarf matarsóun og gera íhlutanir til að minnka hana.
• Hafa þarf eftirlit með gæðum máltíða og næringarinnihaldi.
• Tryggja þarf fjármagn fyrir gæðaríkri skólamáltíð.
• Tryggja þarf að til staðar séu upplýsingar sveitarfélaga um raunkostnað.
• Skýra þarf hvort gjaldfrjálsar skólamáltíðir eigi eingöngu við um hádegisverð eða alla málsverði á skólatíma.
• Taka þarf ákvörðun um framhald verkefnisins þegar því lýkur árið 2027.
Innviðaráðherra hefur nú skipað annan starfshóp sem hefur það hlutverk að fylgja eftir og koma framangreindum ábendingum í farveg. Skipunartími hópsins er til 31. maí 2026.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
Jóhanna Sigurjónsdóttir, fulltrúi innviðaráðuneytis, formaður,
Þór Hauksson Reykdal, fulltrúi mennta- og barnamálaráðuneytis,
Ellen Tryggvadóttir, fulltrúi embættis landslæknis,
Helgi Aðalsteinsson, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Svala Hreinsdóttir, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Niðurstaða hópsins skal liggja fyrir eigi síðar en 31. maí 2026.