Starfshópur um eftirfylgni verkefna á grundvelli samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda sem var undirritað þann 19. mars 2025.
Verkefni hópsins eru að fylgja náið eftir innleiðingu samkomulagsins með áherslu á eftirfylgd samninga, samstillingu aðila og faglegri uppbyggingu nýrra úrræða.
Skipunartími stýrihópsins er frá 3. mars 2026 til 31. desember 2027.
Aðalmenn:
Þór Hauksson Reykdal, formaður, án tilnefningar.
Rannveig Einarsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
María Ingibjörg Kristjánsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Eiríkur K. Þorvarðarson, tilnefndur af Barna- og fjölskyldustofu.
María Gunnarsdóttir, tilnefnd af Barna- og fjölskyldustofu.
Starfsmaður starfshópsins er Vilborg Harðardóttir, sérfræðingur á skrifstofu barnamála.