Í ljósi þess að aðgerðaáætlunin um líknarþjónustu sem heilbrigðisráðuneytið gaf út í janúar 2021 rennur sitt skeið í lok þessa árs skipar heilbrigðisráðherra hér með starfshóp sérfræðinga sem ætlað er að setja fram nýja áætlun, sem tekur mið af því sem áunnist hefur, því sem ekki hefur gengið eftir og þeim breytingum sem orðið hafa á síðustu fimm árum. Þá er lagt til að starfshópurinn leggi sérstaka áherslu á eflingu lífslokameðferðar á öllum stigum heilbrigðisþjónustu.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
- Hulda Guðrún Bragadóttir, formaður, án tilnefningar
- Elsa B. Friðfinnsdóttir, varaformaður, án tilnefningar
- Arna Dögg Einarsdóttir, tilnefnd af Líknarmiðstöð Landspítala
- Dóra Björk Jóhannesdóttir, tilnefnd af Líknarmiðstöð Sjúkrahússins á Akureyri
- Þórhildur Kristinsdóttir, tilnefnd af Læknafélagi Íslands
- Helga Pálmadóttir, tilnefnd af Félagi íslenskra húkrunarfræðinga
- Bjarney Sigurðardóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu
- Helgi Hafsteinn Helgason, tilnefndur af Landssambandi heilbrigðisstofnana
- Rut Gunnarsdóttir, tilnefnd af Heimahjúkrun Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu
- Anna Guðbjörg Gunnarsdóttir, tilnefnd af SELMU teymi Reykjavíkurborgar
Starfsmaður hópsins er Hrafnhildur Ýr Erlendsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.
Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili aðgerðaáætlun til ráðherra eigi síðar en 1. maí 2026