Skipaður 4. maí 2026
Starfshópnum er falið að leggja fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa landsins.
Vinna starfshópsins byggir á samráði sem ráðuneytið hefur átt við sveitarfélög sem standa að náttúrustofum um endurskoðun á stjórnskipulagi náttúrustofanna. Samráð var einnig haft við Náttúrufræðistofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Markmið vinnu starfshópsins er að fyrir liggi tillögur sem tryggi markvissari ráðstöfun fjármuna, auki skýrleika um verkefni sem ríkið fjármagnar, bæti fyrirsjáanleika í rekstri náttúrustofa og tryggi varðveislu og aðgengi að gögnum.
Gert er ráð fyrir að starfshópurinn ljúki störfum fyrir lok árs 2026.
Starfshópinn er þannig skipaður:
Steinar Kaldal, formaður, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti,
Eydís Líndal Finnbogadóttir, forstjóri Náttúrufræðistofnunar,
Sindri Gíslason, forstöðumaður Náttúrustofu Suðvesturlands,
Þorkell Lindberg Þórarinsson, forstöðumaður Náttúrustofu Norðausturlands.
Með hópnum starfar Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi frá Strategia.