Starfshópur um framtíðarþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri

Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp um framtíðarþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri

Markmið starfshópsins er að skoða hvernig best sé að haga þjónustu sjúkrahússins til framtíðar.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir annars og þriðja stigs þjónustu og sinner jafnframt ýmissi stoðþjónustu sem ekki er sérstaklega tilgreind eftir þjónustustigum í lögunum, svo sem rannsóknarþjónustu.
Ráðherra telur rétt að skoða hvernig best sé að koma þjónustunni fyrir og á hvaða þjónustustigi hún skuli veitt til að hámarka nýtingu mannauðs og fjárveitinga í þágu þjónustunnar. Starfshópnum er falið að greina núverandi þjónustu, meta framtíðarþarfir og gera tillögur að útfærslu sem stuðlar að skilvirkni, gæðum og sjálfbærni heilbrigðisþjónustu á norðurlandi.

Starfshópurinn er þannig skipaður:
 
  • Ásta Valdimarsdóttir, formaður
  • Erla Björnsdóttir, fulltrúi Sjúkrahússins á Akureyri
  • Jón Helgi Björnsson, fulltrúi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands
  • Runólfur Pálsson, fulltrúi Landspítala
  • Sigurður Helgi Helgason, fulltrúi Sjúkratrygginga Íslands
  • Jón Magnús Kristjánsson, aðstoðarmaður ráðherra