Starfshópur um fyrirkomulag og framkvæmd á vöktun á laxveiðiám

Atvinnuvegaráðherra hefur skipað starfshóp til að vinna tillögur að fyrirkomulagi, framkvæmd og fjármögnun á vöktun í íslenskum veiðiám. Helstu hlutverk hópsins verða að rýna í kosti þess að koma á föstu kerfi þar sem veiðiár yrðu kerfisbundið vaktaðar. Vinna tillögur að neyðaráætlun stjórnvalda sem grípa megi til í þeim tilvikum að slysasleppingar eiga sér stað. 

Í starfshópnum eiga sæti:

  • Kristján Freyr Helgason, formaður, skipaður af atvinnuvegaráðherra
  • Skúli Kristinn Skúlason, varamaður, skipaður af atvinnuvegaráðherra
  • Guðni Guðbergsson, tilnefndur af Hafrannsóknarstofnun
  • Sveinn Kári Valdimarsson, varamaður, tilnefndur af Hafrannsóknarstofnun
  • Vigdís Sigurðardóttir, tilnefnd af Matvælastofnun
  • Karl Steinar Óskarsson, varamaður, tilnefndur af Matvælastofnun
  • Guðni Magnús Eiriksson, tilnefndur af Fiskistofu
  • Hera Katrín Aradóttir, varamaður, tilnefnd af Fiskistofu