Starfshópur um gerð lagafrumvarps vegna stafræns umhverfis heilbrigðisþjónustu

Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það að markmiði að skýra og afmarka lagaheimildir um stafræna heilbrigðisinnviði, styrkja réttaröryggi sjúklinga, einfalda ábyrgðarkeðju og auka öryggi og skilvirkni í meðferð heilsufarsupplýsinga.

Frá setningu laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár hefur orðið veruleg þróun í stafrænni tækni og innviðum, m.a. með aukinni samtenginu kerfa, miðlægri samhæfingu, rafrænni miðlun upplýsinga og auknum kröfum um upplýsingaöryggi og ábyrgð.

Vinnsla heilsufarupplýsinga felur í sér íhlutun í friðhelgi einkalífs samkvæmt 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Af því leiðir að heimildir um umfangsmiklar og miðlæga vinnslu slíkra upplýsinga verða að eiga sér skýra og afmarkaða stoð í lögum.

Breyting á regluverki um stafrænar sjúkraskrár og miðlæga vinnslu heilbrigðisupplýsinga þarf að byggjast á heildstæðri lagatæknilegri yfirferð þar sem tryggt er að heimildir, ábyrgð og hlutverk mismunandi stofnana samræmist og skarist ekki.

Við uppbyggingu Stafrænnar heilsu er mikilvægt að frá upphafi ríki traust meðal allra haghafa. Um er að ræða umfangsmiklar kerfisbreytingar sem munu hafa áhrif á skipulag, verkaskiptingu og daglega starfsemi innan heilbrigðisþjónustunnar. Slíkar breytingar kalla á skýra sýn og lagaumgjörð.

Heilbrigðisráðherra hefur því, eins og áður sagði, skipað starfshóp með fulltrúum ráðuneytisins, Stafrænnar heilsu og embættis landlæknis um gerð frumvarps með það að markmiði að tryggja skýra lagastoð, samræmi við stjórnarskrá, persónuverndarlöggjöf og réttaröryggi sjúklinga í stafrænu umhverfi heilbrigðisþjónustu.

Starfshópurinn er þannig skipaður:

  • Guðríður Bolladóttir, heilbrigðisráðuneyti
  • Aðalbjörg Guðmundsdóttir, heilbrigðisráðuneyti
  • Hólmar Örn Finnsson, embætti landlæknis
  • Jóhannes Stefánsson, heilbrigðisráðuneyti