Starfssvið:
Heildarendurskoðun laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki stendur nú yfir, í samræmi við ákvæði laganna um að endurskoðun skuli lokið fyrir 1. janúar 2027. Endurskoðunin er unnin í samvinnu fjármála- og efnahagsráðuneytisins og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Vorið 2025 var skipaður starfshópur um endurskoðunina undir forystu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Endurskoðunin felur í sér samanburð við sambærileg erlend stuðningskerfi, skoðun á straumum og stefnum í stuðningskerfum, rýni á framkvæmd og eftirliti auk mats á ávinningi og heildarkortlagningu stuðningskerfis rannsókna, þróunar og nýsköpunar.
Vinnu við endurskoðunina er skipt í tvo áfanga. Í fyrri áfanganum er áhersla lögð á að bæta laga- og regluverk um framkvæmd, umgjörð og skilyrði stuðningsins. Stefnt er að því að leggja fram frumvarp með tilheyrandi breytingum á haustþingi 2025. Á sama tíma er unnið að því að hraða og bæta verklag við yfirferð umsókna og eftirlit í samvinnu við Rannís og Skattinn. Í seinni áfanganum verður sjónum beint að stefnumótun með hliðsjón af umfangi kerfisins og samspil við önnur stuðningskerfi ríkisins á sviði rannsókna og þróunar. Gert er ráð fyrir að frumvarp þess efnis verði lagt fram á haustþingi 2026.
Starfshópinn skipa:
Katrín Anna Guðmundsdóttir, formaður, fjármála- og efnahagsráðuneyti
Bergþór Sigurðsson, fjármála- og efnahagsráðuneyti
Guðmundur Skúli Hartvigsson, fjármála- og efnahagsráðuneyti
Jón Ingi Benediktsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
Marta Guðrún Skúladóttir, fjármála- og efnahagsráðuneyti
Sigríður Geirsdóttir, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti