Starfshópur um innleiðingu Evrópugerðar um einn evrópskan aðgangsstað

Í byrjun ársins 2026 skipaði fjármála- og efnahagsráðherra starfshóp til að vinna frumvarp til laga til að innleiða Evrópugerðir um einn evrópskan aðgangsstað, þ.e. svokallaðar ESAP gerðir (e. European Single Access Point). Þá er það einnig hlutverk starfshópsins að greina ESAP gerðirnar m.t.t. þeirra tæknilegu úrlausnaefna sem í þeim felast, að því marki sem það er nauðsynlegt vegna innleiðingar þeirra í íslensk lög.

Starfshópurinn mun ljúka störfum sínum þegar lagafrumvarp um innleiðinguna verður lagt fram á Alþingi.

Starfshópinn skipa:

  • Steinar Örn Steinsson, formaður, skipaður án tilnefningar
  • Sigurður Guðmundsson, tilnefndur af Seðlabanka Íslands
  • Vilhjálmur Jónsson, tilnefndur af Seðlabanka Íslands
  • Adela Lubina, tilnefnd af Kauphöll Íslands
  • Íris Björk Hreinsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu
  • Halldór Ingi Pálsson, tilnefndur af Skattinum
  • Harpa Theodórsdóttir, tilnefnd af atvinnuvegaráðuneytinu