Starfshópur um jarðhitavegvísi fyrir Ísland

Skipaður 29. október 2025

Hlutverk Starfshópsins er að vinna tillögur til ráðherra um jarðhitavegvísi, framtíðarsýn sem er ætlað að renna styrkari stoðum undir jarðhitanýtingu á Íslandi.

 Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, frá 21. desember 2024 koma fram áform um aukna orkuöflun og verðmætasköpun um allt land. Þá hefur ríkisstjórnin sammælst um að ráðast í róttæka einföldun leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála og greiða götu tæknilausna og nýsköpunar á sviði loftslagsmála. Unnið er að atvinnustefnu fyrir Ísland, vaxtarplani til 2035, þar sem lögð er áhersla á að styðja við framleiðni og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og fjölga hálaunastörfum.
Jarðhiti er ein af grundvallarstoðum íslensks efnahagslífs og samfélags og stendur í dag undir u.þ.b. 2/3 frumorkunotkunar og sér yfir 90% heimila landsins fyrir hita. Hvergi í heiminum leikur jarðhiti jafn veigamikið hlutverk og á Íslandi. Jarðhiti hefur stuðlað að jöfnuði hér á landi og brýnt að tryggja hlutverk hans til framtíðar sem drifkrafts verðmætasköpunar og tækis til jöfnunar lífskjara og búsetuskilyrða um land allt. Auk þess er jarðhiti grunnafl fyrir raforkukerfið og tryggir því nauðsynlegan stöðugleika. Jarðhitanýting í ýmiss konar iðnaði hefur vaxið ört á liðnum árum og mikil vaxtartækifæri eru fólgin í nýtingu auðlindastrauma frá jarðhitavirkjunum, t.a.m. til framleiðslu matvæla og vistvæns eldsneytis. Með hliðsjón af þessu leggur ráðherra áherslu á að samhliða stefnumótun um aukna orkuöflun, verðmætasköpun og vaxtarplan til 2035 verði smíðuð langtímasýn um hlutverk jarðhita til framtíðar sem byggir á þessum forsendum.

Starfshópnum er falið að undirbúa tillögur sem miða m.a. að því að:

• styrkja samkeppnishæfni Íslands sem jarðhitaríkis
• skapa skilyrði til aukinnar raforku- og varmavinnslu með jarðhita og styðja við tækniþróun á sviði jarðhitanýtingar
• beita jarðhita sem tæki til þess að jafna lífskjör og búsetuskilyrði á Íslandi
• treysta hlutverk jarðhitans sem drifkrafts fjölbreyttrar verðmætasköpunar
• stuðla að öflugum grunnrannsóknum og menntun á sviði jarðvísinda og jarðhitanýtingar
• viðhalda og efla leiðandi hlutverk Íslands í jarðhitamálum, efla samstarf við önnur jarðhitaríki og styðja við útflutning þekkingar og tækni á sviði jarðhita

Framkvæmd og skipulag verkefnisins
Stefnumótunin er leidd af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Hana skal vinna með hliðsjón og tilliti til annarrar stefnumótunar á sviði orku- og loftslagsmála og annarra sviða eftir því sem tilefni er til.

Í þessu skyni skipar ráðherra starfshóp sem sæti skipa sex einstaklingar með fjölbreyttan bakgrunn og viðeigandi þekkingu á viðfangsefninu. Með starfshópnum vinna sérfræðingar í orkuteymi ráðuneytisins. Starfshópurinn skal hafa samráð við hagaðila eftir því sem við á, svo sem háskólasamfélagið, Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum og Samorku.

Lagt er upp með að starfshópurinn skili skriflegum niðurstöðum og tillögum til ráðherra í formi skýrslu eigi síðar en 1. júní 2026.

Starfshópurinn er þannig skipaður:

Bjarni Pálsson, formaður
Auður Agla Óladóttir
Sigurður H. Markússon
Elena Dís Víðisdóttir
Finnur Sveinsson
María Erla Marelsdóttir