Starfshópur um könnun alvarlegra atvika er tengjast börnum

Mennta- og barnamálaráðherra skipar starfshóp um könnun alvarlegra atvika er tengjast börnum. 

Hlutverk starfshópsins er að skoða m.t.t. nýrrar framkvæmdaáætlunar í barnavernd 2023-2027, sem nú hefur tekið gildi,  með hvaða hætti best er að koma á sjálfstætt starfandi viðbragðshópi sem hefði það hlutverk að kanna alvarleg atvik er tengjast börnum og miðla lærdómi vegna þeirra.

Starfshópurinn er þannig skipaður:

Aðalmenn:

  • Theódóra Sigurðardóttir, formaður, án tilnefningar,
  • Páll Ólafsson, skv. tilnefningu Barna- og fjölskyldustofu,
  • Kjartan Jón Bjarnason, skv. tilnefningu dómsmálaráðuneytis,
  • Sigríður Dagmar Jóhannsdóttir, skv. tilnefningu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála,
  • Anna María Káradóttir, skv. tilnefningu heilbrigðisráðuneytis,
  • Helgi Valberg Jensson, skv. tilnefningu ríkislögreglustjóra.

Varamenn:

  • Guðrún Þorleifsdóttir, skv. tilnefningu Barna- og fjölskyldustofu,
  • Kristbjörg Fjóla Hrólfsdóttir, skv. tilnefningu dómsmálaráðuneytis,
  • Eygló Harðardóttir, skv. tilnefningu ríkislögreglustjóra.