Starfshópur um loftslagstengda vendipunkta með áherslu á AMOC

Skipaður 11. maí 2026.

Starfshópurinn mun hafa það hlutverk að:

1. Vinna samantekt á stöðu vísindalegrar þekkingar um mögulegar breytingar á AMOC og áhrif á Ísland í formi minnisblaðs til ráðherra.
2. Móta faglega sýn á viðbragð stjórnvalda við niðurstöðum nýjustu rannsókna um AMOC, bæði innanlands og í alþjóðasamstarfi
3. Móta áherslur Íslands í umræðu á alþjóðavettvangi um AMOC og aðra loftslagsvendipunkta,einkum þá sem hafa áhrif á Norður Atlandshaf og norðurheimskautasvæðinu.
4. Móta tillögur um samstarf Íslands á erlendum vettvangi um eflda vöktun vegna AMOC og annarra viðeigandi loftslagstengdra vendipunkta og þolmarka vistkerfa vegna þeirra.
5. Vinna tillögur til ráðherra um samráð vegna miðlunar og mögulegra viðbragða vegna breytinga á AMOC og annarra vendipunkta, þ.m.t. að sérstakri vöktunaráætlun vegna loftslagstengdra vendipunkta og þolmarka vistkerfa vegna þeirra.

Gert er ráð fyrir að hópurinn hafi samráð við þjóðaröryggisráð og aðra viðeigandi hagaðila í starfi sínu.

Gert er ráð fyrir að hópurinn skili minnisblað til ráðherra, sbr. tl. 1 að ofan, eigi síðar en 1. júní 2026.
Starfshópurinn skili minnisblaði til ráðherra um tl. 2-5 eigi síðar en 31. október 2026.


Starfshópurinn er þannig skipaður:

Án tilnefningar
Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur frá skrifstofu loftslagsmála
Freydís Vigfúsdóttir, sérfræðingur frá skrifstofu náttúru og minjaverndar

Samkvæmt tilnefningu Háskóla Íslands
Angel Ruiz Angulo, dósent við jarðvísindadeild Verkfræði og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands 

Samkvæmt tilnefningu Veðurstofu Íslands
Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags
Tinna Þórarinsdóttir, deildarstjóri, til vara

Samkvæmt tilnefningu Hafrannsóknastofnunar
Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri
Steingrímur Jónsson, haffræðingur, til vara

Samkvæmt tilnefnngu atvinnuvegaráðuneytis
Rafn Helgason, sérfræðingur