Starfshópnum er ætlað að greina mikilvæga innviði á Reykjanesskaga og gera tillögu að forgangsröðun mótvægisaðgerða gegn ógn við þessa innviði af völdum náttúruvár. Unnið er á grunni fyrri vinnu við greiningu á mikilvægum innviðum á svæðinu. Um er að ræða undirbúning langtímastefnumörkunar á þessu sviði frekar en viðbragðsáætlana sem eru á verksviði almannavarna.
Í verkefninu felst m.a. að:
- Safna saman og yfirfara fyrirliggjandi upplýsingar og greiningar og láta framkvæma þær frekari greiningar sem þörf er á.
- Leggja mat á hvaða innviðir á Reykjanesskaga, vestan Kleifarvatns, eru nauðsynlegir íbúum og atvinnulífi. Jafnframt verða metnir eftir atvikum ómissandi innviðir á öðrum svæðum á Suðvesturlandi eftir því sem nauðsynlegt er talið vegna samhengis við verkefni starfshópsins.
- Greina mögulegar mótvægisaðgerðir gegn ógn við þessa innviði.
- Greina kostnað og ábata við mótvægisaðgerðir.
- Gera tillögu að forgangsröðun mótvægisaðgerða á grundvelli framangreinds.
- Meta þörf á lagabreytingum til að styðja við markmið verkefnisins, þ.m.t. þörf og útfærslu á almennri löggjöf um fyrirbyggjandi ráðstafanir til verndar mikilvægum innviðum.
Gert er ráð fyrir því að starfshópurinn skili lokaskýrslu sinni til ráðherra fyrir lok maí 2027. Í henni verði gerð grein fyrir þeim mikilvægu innviðum sem eru á svæðinu og mótvægisaðgerðum forgangsraðað á grundvelli niðurstaðna starfshópsins.
Starfshópurinn er skipaður fulltrúum innviðaráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands og Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra. Þess er vænst að vinna starfshópsins nýtist við áframhaldandi sambærilega greiningu á öðrum svæðum á Suðvesturlandi og öðrum landshlutum.
Í starfshópnum eru:
- Ólafur Kr. Hjörleifsson, innviðaráðuneytinu, formaður
- Steinunn Hauksdóttir, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu
- Kjartan Jón Bjarnason, dómsmálaráðuneytinu
- Halldór Geirsson, Háskóla Íslands
- Sigrún Karlsd6ttir, Veðurstofu Íslands
- Dagný Jónsdóttir, Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
Starfsmaður starfshópsins er Arndís Dögg Arnardóttir, innviðaráðuneytinu.