lnnviðaráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að móta viðmið um sjólfbæra þróun sveitarfélaga á sviði fjármála, samfélags og umhverfis ísamræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um að stuðla að því að þörfum nútímans sé mætt án þess að gengið sé á gæði komandi kynslóða. Verkefnið byggir á aðgerðum 1 og 7 í stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024-2028. Starfshópurinn skal skila fyrstu tillögum að viðmiðum eigi síðar en haustið 2026 og þær birtar í samráðsgátt stjórnvalda.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
- Jóhanna Sigurjónsdóttir, fulltrúi innviðaráðuneytisins, formaður hópsins,
- Ásta Bjarnadóttir, fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins,
- Guðrún Heiður Ísaksdóttir, fulltrúi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins,
- Finnur Ricart Andrason, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga,
- Freyja Sigurgeirsdóttir, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga,
- Saga Guðmundsdóttir, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fulltrúar ráðuneyta, sveitarfélaga og annarra hagaðila verða kallaðir til samráðs eftir atvikum.