Félags- húsnæðismálaráðherra hefur skipað starfshóp um nýtt húsnæðislánakerfi. Skipað er til og með 12. mars 2027.
Skipun starfshópsins er í samræmi við áherslur stjórnvalda í húsnæðismálum en nýlegar breytingar á lánamarkaði í tengslum við svokallaða vaxtadóma síðastliðna mánuði hafa undirstrikað nauðsyn þess að greina hvort koma megi á sanngjarnara og gagnsærra húsnæðislánakerfi hér á landi til lengri tíma litið. Jafnframt að greint verði hvort gera þurfi breytingar á núverandi lagaumgjörð fasteignalána til neytenda, til skemmri tíma litið, til að tryggja neytendavernd á þessu sviði.
Verkefni hópsins er tvíþætt:
- Að kortleggja þær breytingar sem orðið hafa á lánaframboði í kjölfar sk. vaxtadóma og áhrif þeirra á neytendur. Í kjölfarið skal hópurinn greina hvort gera þurfi breytingar á löggjöf um fasteignalán til neytenda til að stuðla að því að staða lántaka sé ekki lakari nú en fyrir vaxtadóma og, eftir atvikum, leggja fram tillögur að viðeigandi breytingum.
- Að greina hvort, og þá hvernig, taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi hér á landi, með hliðsjón af erlendum fyrirmyndum, með það fyrir augum að innleiða kerfi sem tryggi meira gagnsæi, sveigjanleika og fyrirsjáanleika fyrir neytendur. Hópurinn skal til samanburðar skoða fyrirkomulag húsnæðislánakerfa erlendis, einkum í nágrannaríkjunum, kosti þess og galla.
Starfshópurinn er svo skipaður:
- Marinó G. Njálsson, án tilnefningar, formaður,
- Rún Knútsdóttir, félags- og húsnæðismálaráðuneyti,
- Róbert Farestveit, Alþýðusamband Íslands,
- Sigrún Brynjarsdóttir, BHM,
- Hrannar Már Gunnarsson, BSRB,
- Guðmundur Axel Hansen, fjármála- og efnahagsráðuneyti,
- Halldór Oddsson, forsætisráðuneyti,
- Guðmundur Ásgeirsson, Hagsmunasamtök heimilanna,
- Þórey S. Þórðardóttir, Landssamtök lífeyrissjóða,
- Breki Karlsson, Neytendasamtökin,
- Matthildur Sveinsdóttir, Neytendastofa,
- Ólafur Garðar Halldórsson, Samtök atvinnulífsins,
- Magnús Fannar Sigurhansson, Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu,
- Sigrún Arna Hallgrímsdóttir, Seðlabanki Íslands.
Varafulltrúar:
- Lísa Margrét Sigurðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðuneyti,
- Henný Hinz, Alþýðusamband Íslands,
- Ingvar Sverrisson, BHM,
- Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, BSRB,
- Anna Borgþórsdóttir Olsen, fjármála- og efnahagsráðuneyti,
- Kristín Ólafsdóttir, forsætisráðuneyti,
- Sigríður Örlygsdóttir, Hagsmunasamtök heimilanna,
- Andrés Þorleifsson, Landssamtök lífeyrissjóða,
- Brynhildur Pétursdóttir, Neytendasamtökin,
- Þórunn Anna Árnadóttir, Neytendastofa,
- Anna Hrefna Ingimundardóttir, Samtök atvinnulífsins,
- Elín Henriksen, Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu,
- Lúðvík Elíasson, Seðlabanki Íslands.
Ekki er greitt sérstaklega fyrir setu í starfshópnum af hálfu ráðuneytisins.