Starfshópur um skattskyldu íþróttastarfsemi

Starfssvið:

Starfshópurinn skal vinna að greiningu á helstu reglum sem gilda um skattaleg réttindi og skyldur þeirra aðila sem hafa með höndum íþróttastarfsemi hér á landi.

Miðað er við að starfshópurinn skili greiningu sinni og eftir atvikum tillögum til ráðherra eigi síðar en 30. apríl 2026.

Starfshópnn skipa:

Helga Jónsdóttir, formaður - fjármála- og efnahagsráðuneytið
Hlynur Ingason - fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ingibjörg Helga Helgadóttir - fjármála- og efnahagsráðuneytið
Jón Steindór Árnason - íþrótta- og ólympíusamband Íslands
Jónas Gestur Jónasson - íþrótta- og ólympíusamband Íslands