Innviðaráðherra hefur skipað starfshóp vegna uppskiptingar fasteignaskrár og þinglýsingarhluta hennar, sbr. ákvæði II til bráðabirgða í lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna flutnings fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (fasteignaskrá) nr. 36/2022.
Starfshópnum er falið það hlutverk að móta heppilegasta samspil þinglýsingarhluta fasteignaskrár við aðra hluta hennar og þinglýsingabók fasteigna. Starfshópnum er ætlað að leita bestu niðurstöðu með tilliti til þarfa hagsmunaaðila fyrir þjónustu hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og sýslumönnum.
Starfshópurinn er skipaður sérfræðingum frá innviðaráðuneytinu, sem jafnframt fer með formennsku, dómsmálaráðuneytinu, sýslumanni, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Stafrænu Íslandi.
Starfshópurinn er svo skipaður:
Valdís Ösp Árnadóttir, formaður, tilnefnd af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu,
Guðmundur Bjarni Ragnarsson, tilnefndur af dómsmálaráðuneytinu,
Kristín Þórðardóttir, tilnefnd af sýslumannaráði,
Hermann Jónasson, tilnefndur af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun,
Birna Íris Jónsdóttir, tilnefnd af Stafrænu Íslandi.