Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp um útfærslu og innleiðingu á verklegri þjálfun til starfsleyfis sálfræðinga.
Áhersla er lögð á að starfshópurinn skili raunhæfum tillögum þar sem umfang og markmið þjálfunarinnar er útfært, þjálfunarstaðir ásamt skilyrðum sem gera skal til þeirra og handleiðara eru skilgreind og lögð eru fram drög að hæfniviðmiðum sem uppfylla þarf til að teljast hafa lokið þjálfuninni.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
- Ingibjörg Sveinsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, Formaður
- Pétur Maack Þorsteinsson, tilnefndur af Sálfræðingafélagi Íslands
- Erla Björg Birgisdóttir, tilnefnd af Landspítala
- Liv Anna Gunnell, tilnefnd af Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
- Gyða Dögg Einarsdóttir, tilnefnd af Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
- Linda Bára Lýðsdóttir, tilnefnd af Háskólanum í Reykjavík
- Urður Njarðvík, tilnefnd af Háskóla Íslands
- Óli Halldórsson, tilnefndur af Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu
Starfsmaður hópsins er Brynhildur Magnúsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.