Stefnuráð um stafræn mál á sviði heilbrigðisþjónustu

Heilbrigðisráðherra hefur skipað í Stefnuráð um stafræn mál á sviði heilbrigðisþjónustu. Stefnuráðið tekur til starfa í kjölfar vinnu Stýrihóps um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir og heilbrigðistækni við veitingu heilbrigðisþjónustu. 
Stefnuráðið er stefnumótandi stýrihópur sem ber ábyrgð á tillögum að heildarverkefnum stafrænnar heilbrigðisþjónustu á Íslandi – innihaldi þeirra, framkvæmd, forgangsröðun og árangri til að tryggja samræmda framvindu.

Helstu verkefni ráðsins eru:

  • Móta þriggja ára vegvísi fyrir stafræn heilbrigðismál, með áherslu á samfellu í þjónustu og nána tengingu við fjárhagslega áætlanagerð heilbrigðiskerfisins í heild
  • Tryggja samræmda og skilvirka framvindu verkefna og forgangsröðun í samræmi við stefnu stjórnvalda í stafrænum málum
  • Stefna að því að auka gæði samkvæmt alþjóðlegum mælikvörðum (CCMM Capability and Capacity Maturity Moldel) innan 2-3 ára

Stefnuráð um stafræn mál á sviði heilbrigðisþjónustu er þannig skipað:

Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri HRN, formaður
María Heimisdóttir, landlæknir
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala 
Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands
Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýs Landspítala
Dagný Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Orkuhússins
Arnar Bergþórsson, heilbrigðisráðuneyti

Skipað af heilbrigðisráðherra 3. nóvember 2025.