Stjórn Byggðastofnunar

Stjórn Byggðastofnunar er kjörin á ársfundi stofnunarinnar til eins árs í senn skv. 3. gr. laga um Byggðastofnun nr. 106/1999. Sjö einstaklingar eru kjörnir í stjórn og sjö til vara. Ráðherra byggðamála skipar formann og varaformann og ákveður þóknun stjórnar.

Stjórn Byggðastofnunar ber ábyrgð á starfsemi stofnunarinnar og stefnumótun hennar sem og áhættustefnu og að til staðar sé virkt kerfi innra eftirlits sem samræmist lögum um fjármálafyrirtæki og reglum settum með stöð í þeim. 

Stjórn Byggðastofnunar var skipuð á ársfundi stofnunarinnar þann 8. maí 2025 og í henni sitja:

Aðalmenn:

  • Halldór Gunnar Ólafsson, Skagaströnd - formaður
  • Vigfús Þórarinn Ásbjörnsson, Höfn – varaformaður
  • Steindór Runiberg Haraldsson, Skagaströnd
  • Ingunn Heiða Ingimarsdóttir, Egilsstöðum
  • Haraldur Benediktsson, Akranesi
  • Heiðbrá Ólafsdóttir, Rangárþingi eystra
  • Margrét Sanders, Reykjanesbæ

Varamenn:

  • Guðrún Helga Bjarnadóttir, Reykjavík
  • Hafþór Guðmundsson, Þingeyri
  • Kjartan Páll Þórarinsson, Húsavík
  • Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, Akureyri
  • Sigríður Framdalz Ólafsdóttir, Hvammstanga
  • Unnar Hermannsson, Garðabæ
  • Arnar Þór Sævarsson, Reykjavík

Skipunartími stjórnar er fram að næsta ársfundi stofnunarinnar sem halda skal fyrir 1. júlí 2026