Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra skipaði í apríl 2025 stjórn fyrir Eyvör, hæfnisetur í netöryggi (NCC-IS).
Íslensk stjórnvöld, í samvinnu við Fjarskiptastofu, Rannís, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Auðnu, hlutu styrk frá Evrópusambandinu árið 2023 til að koma á laggirnar hæfnisetri í netöryggi. Hæfnisetrið Eyvör (NCC-IS), var síðan formlega stofnað í apríl 2024. Eyvör er hluti af European Cyber Security Competence Center (ECCC). Eitt af verkefnum Eyvarar er að veita netöryggisstyrki en markmiðið með þeim er að styðja verkefni á sviði netöryggis á Íslandi, bæði fyrir fyrirtæki og opinbera aðila.
Í stjórn Eyvarar sitja fulltrúar frá Fjarskiptastofu (formaður), innviðaráðuneytinu, Rannís, HÍ og HR. Stjórnin er skipuð til tveggja ára.
- Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu og stjórnarformaður.
- Aðalsteinn Þorsteinsson, skrifstofustjóri innviðaráðuneyti.
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, forseti samfélagssviðs HR.
- Sigurður Magnús Garðarsson, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ.
- Svandís Unnur Sigurðardóttir, teymisstjóri hjá Tækniþróunarsjóði Rannís.