Stjórn heilbrigðisvísindasjóðs

Heilbrigðisvísindasjóður, rannsóknarsjóður í heilbrigðisvísindum, er sérstakur sjóður sem heyrir undir heilbrigðisráðherra í samræmi við heilbrigðistefnu til ársins 2030.

Hlutverk sjóðsins er að efla rannsóknir í heilbrigðisvísindum frá grunnvísindum til lýðheilsu og klínískra rannsókna. 

Heilbrigðisvísindasjóður er samkeppnissjóður og hefur ráðherra falið Rannís, Rannsóknamiðstöð Íslands, umjón með sjóðnum. 

Stjórn heilbrigðisvísindasjóðs skipa

  • Guðrún Ása Björnsdóttir, án tilnefningar, formaður
  • Unnur Þorsteinsdóttir, tiln. af samstarfsnefnd háskólastigsins
  • Thor Aspelund, tiln. af samstarfsnefnd háskólastigsins
  • Brynjar Karlsson, tiln. af samstarfsnefnd háskólastigsins
  • Sigurdís Haraldsdóttir, án tilnefningar

Stjórnin er skipuð af heilbrigðisráðherra til þriggja ára, frá 20. desember 2024 til 19. desember 2027.