Stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sbr. 4. gr. laga nr. 137/2019 um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hlutverk stjórnar er að móta áherslur í starfi og fylgjast með starfsemi og rekstri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Stjórnin setur sér starfsreglur þar sem nánar skal kveðið á um framkvæmd starfa stjórnarinnar. Í starfsreglum þessum skal m.a. fjallað sérstaklega um heimildir stjórnar til að taka ákvarðanir í einstökum málum og þátttöku stjórnarmanna í meðferð mála. Ráðherra skal staðfesta starfsreglur stjórnar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Reglurnar skulu birtar opinberlega.

Stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er svo skipuð:

  • Sigurður Tyrfingsson, formaður, án tilnefningar,
  • Jónas Yngvi Ásgrímsson, án tilnefningar,
  • Oddný Árnadóttir, án tilnefningar,
  • Sigríður Ósk Bjarnadóttir, án tilnefningar,
  • Arnar Þór Sævarsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Til vara:

  • Hanna Guðmundsdóttir, án tilnefningar,
  • Rúnar Sigurjónsson, án tilnefningar.