Landspítali starfar samkvæmt lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum. Samkvæmt 8. gr. a. laganna skipar heilbrigðisráðherra fimm menn í stjórn Landspítala, og tvo til vara, til tveggja ára í senn. Skal einn skipaður formaður stjórnar og annar varaformaður. Jafnframt skal ráðherra skipa tvo áheyrnarfulltrúa úr hópi starfsmanna Landspítalans með málfrelsi og tillögurétt, án atkvæðisréttar.
Stjórn Landspítala skal í samráði við forstjóra marka stofnuninni langtímastefnu í samræmi við stefnumörkun ráðherra og hlutverk stofnunarinnar samkvæmt lögum. Formaður stjórnar Landspítala skal reglulega gera ráðherra grein fyrir starfsemi stjórnar og stöðu og árangri spítalans. Að öðru leyti er um hlutverk stjórnar og formanns vísað til 8. gr. a laga nr. 40/2007, reglugerðar um stjórn Landspítala og erindisbréfs stjórnar.
Stjórn Landspítala skipa
- Regína Ástvaldsdóttir, félagsráðgjafi og verkefnisstjóri Gott að eldast, formaður.
- Birna Einarsdóttir, viðskipta- og hagfræðingur
- Anna Sigríður Islind, prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík
- Thor Aspelund, prófessor við Háskóla Ísalnds í Miðstöð í lýðheilsufræðum
- Guðjón Hauksson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri
Varamenn
- Óskar Reykdalsson, heimilislæknir
- Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor emeritus í opinberri stjórnsýslu
Áheyrnarfulltrúar starfsmanna
- Signý Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Theódór Skúli Sigurðsson, svæfingalæknir
Varamaður áheyrnarfulltrúa
- Sólveig Steinunn Pálsdóttir, sjúkraþjálfari
Stjórnin er endurskipuð af heilbrigðisráðherra frá 11. júlí 2026 til næstu tveggja ára.