Hlutverk Náttúruhamfaratryggingar Íslands er að vátryggja gegn tjóni af völdum náttúruhamfara sem nefndar eru í 4. gr. laga um Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Starf nefndarinnar grundvallast á 2. grein laganna.
Stjórn stofnunarinnar skipa fimm menn. Skulu þrír kosnir af Alþingi, einn valinn af þeim vátryggingafélögum sem innheimta iðgjöld, sbr. 3. mgr., en fjármála- og efnahagsráðherra, skipar einn og skal hann vera formaður. Varamenn skulu valdir á sama hátt. Stjórnarmenn skulu skipaðir til fjögurra ára í senn. ,
Í nefndinni sitja (skipuð 2023-2027):
- Sigurður Kári Kristjánsson, formaður, án tilnefningar
- Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir, kosin af Alþingi
- Íris Björk Hreinsdóttir, valin af vátryggingafélögum sem innheimta gjöld til náttúruhamfaratryggingar
- Ragnar Þorgeirsson, kosinn af Alþingi
- Steinar Harðarson, kosinn af Alþingi
Til vara:
- Gunnar Már Gunnarsson, kosinn af Alþingi
- Ingvar Haraldsson, valin af vátryggingafélögum sem innheimta gjöld til náttúruhamfaratryggingar
- Páll Friðriksson, án tilnefningar
- Silja Dögg Gunnarsdóttir, kosin af Alþingi
- Sigríður Gísladóttir, kosin af Alþingi