Mannréttindi varða Stjórnarráðið og stjórnsýsluna í heild og því er öflug samvinna um málaflokkinn nauðsynleg. Stýrihópurinn er formlegur vettvangur til samhæfingar og samráðs á sviði mannréttindamála innan Stjórnarráðsins. Hópurinn leitast við að eiga reglulegt samtal og samráð við hagsmunaaðila. Dómsmálaráðherra skipar í stýrihópinn.
Helstu viðfangsefni stýrihópsins eru eftirtalin:
- Að stuðla að þekkingu um mannréttindi og mannréttindavernd innan Stjórnarráðsins.
- Að stuðla að samstarfi og upplýsingagjöf á milli ráðuneyta um verkefni sem lúta að mannréttindum.
- Skýrslugerð vegna mannréttindasamninga Sameinuðu þjóðanna og þátttaka í fyrirtökum vegna framkvæmdar Íslands á grundvelli þeirra.
- Þátttaka í úttektum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála hérlendis (e. Universal Periodic Review).
- Að fylgja eftir tilmælum vegna úttekta Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála hérlendis og lokaathugasemdum mannréttindanefnda Sameinuðu þjóðanna og upplýsa ráðherra reglulega um framvindu eftirfylgninnar.
Stýrihópurinn er þannig skipaður:
- Ingigerður Bjarndís Írisar Ágústsdóttir, formaður, dómsmálaráðuneyti
- Ingunn Elísabet Markúsdóttir, varaformaður, dómsmálaráðuneyti
- Arndís Dögg Arnardóttir, innviðaráðuneyti
- Atli Lilliendahl, atvinnuvegaráðuneyti
- Áshildur Linnet, félags- og húsnæðismálaráðuneyti
- Bylgja Árnadóttir, utanríkisráðuneyti
- Ester Petra Gunnarsdóttir, heilbrigðisráðuneyti
- Guðjón Björn Guðbjartsson, forsætisráðuneyti
- Guðni Olgeirsson, mennta- og barnamálaráðuneyti
- Marta María Halldórsdóttir, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
- Steinar Örn Jónsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti
- Vífill Harðarson, fjármála- og efnahagsráðuneyti
Kristrún Friðriksdóttir, dómsmálaráðuneyti, er starfsmaður hópsins.