Skipaður 4. apríl 2025
Stýrihópnum er falið það hlutverk að hafa umsjón með framkvæmd áætlunarinnar Hreint loft til framtíðar - áætlun um loftgæði á Íslandi 2018 – 2029 sem gefin var út í nóvember 2017 í samræmi við ákvæði 6. mgr. 36. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Hlutverk stýrihópsins er að kanna reglulega hvernig framkvæmdum aðgerða í loftgæðaáætluninni miðar og stuðla að eftirfylgni hennar.
Ábyrgð á framkvæmd áætlunarinnar er í höndum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins en ráðuneytið vinnur í samstarfi við Umhverfis- og orkustofnun, heilbrigðisnefndir sveitarfélaga, frjáls félagasamtök, atvinnulífið, Embætti landlæknis (sóttvarnalækni), önnur ráðuneyti og fagfólk að nánari útfærslu einstakra þátta áætlunarinnar og eru markmið hennar endurskoðuð reglulega.
Ráðuneytið annast einnig, í samráði við Umhverfis- og orkustofnun, eftirlit með framkvæmd áætlunarinnar og leggur mat á hvort aðgerðir hafi skilað væntanlegum árangri. Mat og eftirlit vegna áætlunarinnar er á hendi Umhverfis- og orkustofnunar, sem miðstöð í loftgæðaeftirliti og gagnasöfnun í málaflokknum. Endurskoðun áætlunarinnar er hafin.
Stýrihópurinn er skipaður til þriggja ára og skal hópurinn upplýsa ráðherra tvisvar á ári um hvernig framkvæmdum aðgerða í loftgæðaáætluninni miðar.
Án tilnefningar
Einar Halldórsson, formaður,
Erla Arnardóttir
Samkvæmt tilnefningu innviðaráðuneytis
Valgerður Gréta Benediktsdóttir
Samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Finnur Ricart Andrason
Samkvæmt tilnefningu Vegagerðarinnar
Páll Valdimar Kolka Jónsson
Samkvæmt tilnefningu Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi
Svava S. Steinarsdóttir