Stýrihópur um endurskoðun regluverks um reikningsskil sveitarfélaga

Innviðaráðherra skipaði í maí 2025 stýrihóp um endurskoðun regluverks um reikningsskil sveitarfélaga.

Samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga (Jónsmessunefnd) samþykkti á fundi sínum þann 15. janúar 2025 að hefja skuli vinnu við endurskoðun á regluverki vegna reikningsskila sveitarfélaga. Í endurskoðun á regluverkinu felst að lög og reglugerðir sem gilda fyrir bókhald, reikningsskil og fjárhagsáætlanir sveitarfélaga verði endurskoðheildstætt. Regluverkið er komið til ára sinna og hefur ekki verið uppfært í takt við breytingar á sveitarstjórnarstiginu, reikningsskilastaðla og lög um ársreikninga, en einnig gætir ósamræmis milli reglugerðar og auglýsingar um framangreint. Þá er brýnt að bæta kröfur um færslu á bókhaldi, fjölga bókhaldslyklum og gera skýrar leiðbeiningar til að auka samanburðarhæfni bókhaldsgagna.

Jónsmessunefnd fól samráðsnefnd um opinber fjármál að hafa yfirumsjón með verkefninu en tekin hefur verið sú ákvörðun að skipa stýrihóp sem fari með verkstjórn og utanumhald með verkefninu með hliðsjón af verk- og tímaáætlun í meðfylgjandi minnisblaði samráðsnefndar um opinber fjármál til Jónsmessunefndar, dags. 26. febrúar 2025. Þar er m.a. gert ráð fyrir að virkjaðir verði vinnuhópar með fagstjórum málaflokka hjá sveitarfélögum, fjármálastjórum og öðrum sérfræðingum í fjármálum sveitarfélaga og haldnar verði vinnustofur með sömu aðilum í því skyni að fá fram tillögur að breytingum á regluverkinu. Þá er gert ráð fyrir að fá sérfræðinga í reikningsskilum, ferlum og áætlanagerð sem hafa þekkingu á fjárhag sveitarfélaga til að vinna tillögur að breytingum og samræmingu milli reglugerða og lagatexta sem snýr að fjárhagsupplýsingum sveitarfélaga. Stýrihópurinn skal jafnframt eiga góða samvinnu við viðkomandi ráðuneyti, starfsmenn þeirra og undirnefndir ásamt því að upplýsa reglulega samráðsnefnd um opinber fjármál um gang verkefnisins.

Stýrihópurinn er þannig skipaður:
Jóhanna Sigurjónsdóttir, formaður, án tilnefningar,
Árni Sverrir Hafsteinsson, án tilnefningar,
Helgi Aðalsteinsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
Jóhannes Á. Jóhannesson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
Þórdís Sveinsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Skipunartími hópsins er til 30. maí 2026.