Stýrihópur um framkvæmd uppgjörs loftslagsskuldbindinga í samstarfi við ESB

Skipaður 12. febrúar 2026 til þriggja ára.
Stýrihópurinn hefur það hlutverk að gera tillögur að framkvæmd uppgjörs loftslagsskuldbindinga heildrænt. Hópnum er falið að gera tillögu að framkvæmd uppgjörs 2027-2028, bæði fyrir ESR (skuldbindingar varðandi samfélagslosun) og LULUCF (skuldbindingar varðandi landnotkun), ásamt tillögu að áframhaldandi nýtingu ETS sveigjanleika sem þarf að ákveða fyrir lok árs 2027.

Hópurinn er skipaður með vísan til 1. gr. d í lögum um loftslagsmál nr. 70/2012 og samstarfs Íslands við ESB skv. upptöku laga og reglna um þátttöku í ETS-kerfinu og skuldbindingar vegna samfélagslosunar og losunar frá landi. Þá geti hópurinn komið að öðrum ákvörðunum sem viðkoma uppgjörinu, t.a.m. greiningum á mögulegri skuld Íslands til að undirbyggja umfjöllun í ríkisreikningi og fjármálaáætlun og framsetningu skýrslugjafar undir Parísarsamningnum. Hópnum ber einnig að kynna sér vinnulag við uppgjör loftslagsskuldbindinga í öðrum löndum.

Stýrihópurinn er þannig skipaður:

Án tilnefningar
Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, formaður
Íris Bjargmundsdóttir

Samkvæmt tilnefningu Lands og skógar
Bryndís Marteinsdóttir
Leone Tinganelli, til vara,

Samkvæmt tilnefingu utanríkisráðuneytis
Emma Adolfsdóttir
María Erla Marelsdóttir, til vara,

Samkvæmt tilnefningu fjármála- og efnahagsráðuneytis
Kristinn Bjarnason
Guðrún Birna Finnsdóttir, til vara,

Samkvæmt tilnefningu Umhverfis- og orkustofnunar
Nicole Keller
Birgir Urbancic Ásgeirsson, til vara