Í framhaldi samþykktar kjarasamnings fjármálaráðherra f.h. ríkisins og Skurðlæknafélags Íslands dags. 30. september 2025 skipar heilbrigðisráðherra stýrihóp með fulltrúum samningsaðila sem starfar á gildistíma kjarasamningsins og hefur það hlutverk að tryggja innleiðingu og eftirfylgni þeirra umbóta og kerfisbreytinga sem kjarasamningurinn kallar á, á landsvísu.
Stýrihópurinn skal eiga í reglubundnu samráði við heilbrigðisráðherra um framgang verkefnisins. Stýrihópi ber að fylgja eftir ákvæðum og samþykktum í kjarasamningi aðila, þ.m.t. sértækum ákvörðunum á heilbrigðisstofnunum, í nánu samstarfi við yfirstjórn stofnunar.
Stýrihópurinn fylgist með framvindu verkefnisins til að tryggja að markmið náist og forsendur standist og hefur heimild til að bregðast við ef svo er ekki. Stýrihópurinn upplýsir ráðherra sérstaklega ef stefnir í þjónustuskerðingu eða að innleiðing leiði til kostnaðarauka umfram fjárveitingu. Þá ber hópurinn ábyrgð á að útbúnar verði miðlægar leiðbeiningar og stuðningsefni til nota fyrir stjórnendur, lækna og aðra haghafa.
Stýrihópinn skipa
- Tómas Þór Ágústsson, án tilnefningar, formaður stýrihópsins
- Elsa Björk Valsdóttir, fulltrúi Skurðlæknafélags Íslands
- Halldóra Friðjónsdóttir, fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins
Fríða Björg Leifsdóttir, er verkefnastjóri stýrihópsins.
Stýrihópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 24. nóvember 2025.