Stýrihópur um mat á áfallaþoli

Alma D. Möller hefur skipað stýrihóp um mat á áfallaþoli í kjölfar þess að Atlantshafsbandalagið (NATO) hefur brugðist við breytingum á öryggisumhverfi Evrópu í kjölfar innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og vaxandi spennu í alþjóðasamskiptum með því að styrkja sameiginlega fælingar- og varnargetu bandalagsríkja í samræmi við 5. gr. Atlantshafssáttmálans um gagnkvæmar varnarskuldbindingar. 

Einnig hefur áherslan á áfallaþol bandalagsríkja, á grundvelli 3. gr. sáttmálans um að ríkjunum beri að tryggja eigin varnir, stóraukist. Þannig er tryggt að viðbúnaður og áfallaþol bandalagsríkja teljist fullnægjandi til þess að takast á við spennuástand og átök.

NATO hefur lagt til að bandalagsríki efli áfallaþol sinna samfélaga og hafa leiðtogar bandalagsríkja skuldbundið sig til að efla áfallaþol með því að vinna að eftirfarandi grunnviðmiðum:

  1. Tryggja samfellu í stjórnsýslu og lykilþjónustu stjórnvalda
  2. Áfallaþol orkuaðgengis
  3. Skilvirk geta til að framkvæma ófyrirséða fólksflutninga
  4. Áfallaþol matar- og vatnsaðfanga
  5. Geta til að meðhöndla fjöldadauðsföll og heilbrigðisáföll
  6. Áfallaþolið borgaralegt fjarskiptakerfi
  7. Áfallaþolið borgaralegt samgöngukerfi

 

Stjórnvöld hafa ákveðið að heilbrigðisráðuneytið hafi yfirumsjón með fimmta viðmiðinu. Við vinnuna er gert ráð fyrir að haft verði hliðsjón af niðurstöðu greiningar á áfallaþoli og skýrslu Sóttvarnarstofnunar Evrópu um mat á heilbrigðisviðbúnaði hér á landi.

Þá er hópnum gert að vinna aðgerðaráætlun byggða á ofangreindu mati.

Stýrihópurinn er þannig skipaður:

 

Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins, formaður

Tryggvi Hjörtur Oddsson, embætti landlæknis

Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Guðrún Lísbet Níelsdóttir, Landspítala

Guðlín Steinsdóttir, heilbrigðisráðuneyti