Stýrihópur um stafræn verkfæri, tæknilega staðla og gagnainnviði - samhæfing þvert á skólastig

Stýrihópurinn hefur það hlutverk að gera tillögu að sameiginlegri yfirsýn að framtíð tengingu grunna og upplýsinga er tengjast börnum, samhæfingu tæknilegra staðla og gagnainnviða (vefskil, öryggiskröfur og auðkennisstefna) til að tryggja að hægt sé að skapa forsendur til markvissrar hagnýtingar gagna í þágu árangursríkrar stefnumótunar og fjárfestingar í farsæld barna.

Samhliða og til stuðnings vinnu stýrihópsins, verður unnin kortlagning gagna sem opinberir aðilar og stofnanir safna með markvissum hætti og greining á því hvernig þau nýtast/gætu nýst til að stuðla að farsæld barna (m.a. MMS, BOFS, Hagstofan, Sambandið, ÍÆ, Mælaborð um farsæld barna). Einnig verður framkvæmd greining á fjármögnun og nýtingu fjármagns í málaflokknum (m.a. fjárhagsleg gögn sem varða rekstur leik-, grunn- og framhaldsskóla, frístundastarfs, skóla- og félagsþjónustu sveitarfélaga) og tengingu við bæði stefnumótun og fjárfestingar í aðgerðum í þágu barna þvert á kerfi. Greining í samræmi við ofangreint skal liggja fyrir og vera skilað til stýrihóps fyrir 1. febrúar 2026. Nánari útfærsla á framkvæmd þessarar greiningar er formlega í höndum mennta- og barnamálaráðuneytis með fyrirvara um samþykki Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nefndin er þannig skipuð:

  • Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, án tilnefningar
  • Hlynur Bjarki Karlsson, án tilnefningar
  • Óskar Jörgen Sandholt, samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Þórdís Sveinsdóttir, samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga